LUKR er samstarfsverkefni Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar, Skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar, Upplýsingatæknimiðstöðvar Reykjavíkurborgar (UTM), Orkuveitu Reykjavíkur og Mílu ehf um að reka samræmt og samtengt landupplýsingakerfi fyrir alla borgina. Landupplýsingar á Framkvæmda- og eignasviði eru í forsvari fyrir verkefnið, annast rekstur þess og veita allar upplýsingar um það (lukr@rvk.is).

Landupplýsingakerfi (einnig nefnd landfræðileg upplýsingakerfi) eru tölvukerfi ætluð til innsetningar, samtengingar og úrvinnslu á bæði myndrænum gögnum og textagögnum sem eiga það sameiginlegt að tengjast ákveðnum stöðum eða svæðum. Gagnasöfn LUKR eru mjög yfirgripsmikil og í stöðugum vexti. Þau skiptast í mörg svonefnd gagnaþemu sem hvert um sig geymir upplýsingar um ákveðna tegund landupplýsinga, til dæmis byggingar, lóðamörk, hæðarlínur, götukanta og fleira.

Upplýsingunum má skipta í grafískar upplýsingar og tengdar upplýsingar eða eigindir. Útlínur húss með staðsetningum í hnitakerfi borgarinnar eru dæmi um hið fyrrnefnda en ýmsar upplýsingar sem tengjast húsinu eru dæmi um hið síðarnefnda.

Á Netinu er almenningi í gegnum Borgarvefsjá veittur ókeypis aðgangur að miklu safni upplýsinga úr LUKR á einfaldan og aðgengilegan hátt (www.borgarvefsja.is).  Með því að velja þar útprentunarhnapp má vista gögnin og setja inn í önnur forrit til frekari vinnslu.

Tekið er gjald fyrir notkun gagna á vigurformi (vektor), sjá hér.